Tótan bloggar

søndag, februar 17, 2008

Í skólanum á sunnudegi

Í mörg ár fór ég í sunnudagaskólann í Hafnarfjarðarkirkju og fékk þar myndir til að lita og möppu utan um þær. Á möppuna safnaði ég svo stjörnum sem ég fékk hvern sunnudag. Í dag er ég í skólanum á sunnudegi en fæ enga stjörnu! Hér er dimmt á göngunum og allar dyr læstar. Ég athuga því alltaf þrisvar áður en ég yfirgef herbergi hvort lyklarnir séu örugglega í vasanum. Væri svekkjandi að læsa lyklana inni með úlpunni, strætókortinu og símanum.

Í seinni tíð hef ég haft mikla óbeit á köttum og öðrum loðnum dýrum sem ég hef ofnæmi fyrir - þau eru allnokkur. Í morgun sá ég út um gluggann stelpu með köttinn sinn í bandi! Ekki nóg með það heldur var ólukkans kötturinn á öxlinni á henni eins og hver annar páfagaukur. Ég væri ekki einu sinni til í að halda í bandið og hvað þá að hafa köttinn við andlitið á mér - mig bara klæjar í nefið af tilhugsuninni!

Ekki meira núna.

2 Comments:

  • At 01.43, Blogger Djalla said…

    hmmm, ég vona að þú fáir ekki óbeit á Lappa litla, það væri mjög leiðinlegt :(

     
  • At 12.28, Blogger Tóta said…

    Nei ég efast nú um það. Hef ekki fundið ofnæmi fyrir labrador og svo er ég sannfærð um að hann verður vel upp alinn:) Hrikalega krúttlegt nafn sem hann hefur fengið!

     

Send en kommentar

<< Home