here comes the sun...
Var að setja nýja tónlist inn á ipoddinn minn um daginn þannig að nú er hann fullur af jólatónlist og Bítlunum. Sat svo í strætó og hlustaði á rauða albúmið og mér til mikillar furðu kunni ég röðina á lögunum, byrjaði að syngja næsta lag áður en það byrjaði. Minnti mig á þegar ég sat í stofunni heima hjá mömmu og pabba með gömlu plötuna hans pabba á fóninum og umslagið í höndunum að lesa textana og syngja með - gerði það í mörg ár og ekki svo langt síðan ég gerði það síðast!
12 dagar í heimkomu - tilhlökkunin dvínar ekkert úr þessu.
12 dagar í heimkomu - tilhlökkunin dvínar ekkert úr þessu.

0 Comments:
Send en kommentar
<< Home