Julebryg
Íslendingafélagið í DTU tók vel á móti jólabjórnum á Pilegården síðast liðinn föstudag. Við stelpurnar ætluðum náttúrlega aðeins að kíkja og fá okkur svona einn eða tvo. Ekki veit ég hvað í ósköpunum þeir settu eiginlega í bjórinn okkar en þeir urðu aðeins fleiri en tveir og þar af leiðandi alveg öskrandi stuð fram eftir nóttu. Á endanum römbuðum við á réttan næturstrætó sem skutlaði okkur heim.
Glerið mitt sem ég pantaði fyrir rúmum mánuði var í gæsluvarðhaldi í vöruhúsi DHL í London um helgina. Loksins þegar allt var komið á hreint og hægt var að borga sendingarkostnaðinn var skrifstofan í DTU, sem sér um borgunina, lokuð og því þurfti að bíða þar til í dag - sjáum til hvort fiskurinn tekur að sér að greiða þetta svo að hægt sé að senda þessi 500 kg af gleri til mín! Ef allt gengur að óskum á það að vera komið hingað í lok vikunnar :)

1 Comments:
At 20.51,
baldvine said…
Ha! Þú veist að jólabjórinn er talsvert sterkari en venjulegur bjór, er þaggi?
Send en kommentar
<< Home