Tótan bloggar

søndag, oktober 21, 2007

húsmóðir.is

Danir eru ekkert alltof forsjálir. Tveir hjartahlýir drengir úr DTU komu og litu á raflögnina sem ég boraði í sundur um daginn. Í ljós kom að ólukkans durgurinn sem lagði rafmagnið steypti raflögnina í parabólu inn í vegginn. Því er algerlega ómögulegt að reikna út hvar druslan liggur og hvað þá að draga nýja í. Á dagskrá er því að brjóta út úr gatinu, gera við og setja dós í staðinn - þarna sjáum við við þeim :)

Í dag hefur verið húsmæðradagur. Ég er náttúrlega einstaklega sparsöm/nísk ung kona og þáði því stofugardínurnar hjá Guðlaugu þegar hún flutti. Glugginn minn er hins vegar að minnsta kosti þrisvar sinnum minni svo að það þurfti að stytta þær töluvert. Ætlaði að vera rosalega sniðug um daginn þegar ég skrapp til Íslands og tók þær með í von um að mamma smellti þeim í gegnum saumavélina - hún skildi auðvitað ekki hintið hjá mér svo að gardínurnar komu aftur með mér til Danmerkur óstyttar. Eftir nokkra flutninga undanfarin ár er ég orðin þreytt á að koma mér ekki almennilega fyrir - alltaf svona hálfflutt. Þess vegna tók ég mig til og stytti ólukkans gardínurnar í höndunum í dag - og það tók ansi langan tíma. Þurfti bæði að klippa og minnka lykkjurnar utan um stöngina og taka neðan af þeim. Þetta hafðist þó að lokum enda bý ég enn að því þegar amma kenndi mér að hexa í gamla daga. Er mjög ánægð með árangurinn og þokkalega stolt af sjálfri mér!

5 Comments:

  • At 21.29, Anonymous Anonym said…

    Dugleg!

     
  • At 00.32, Anonymous Anonym said…

    Djís hvað ég er stolt af þér !

     
  • At 10.20, Blogger Tóta said…

    ... og dugnaðurinn hélt áfram um kvöldið. Kláraði að ganga frá endum af lopapeysu sem ég prjónaði í fyrra og saumaði ermarnar á peysu handa Manga litla - vantar bara tölurnar núna.

     
  • At 21.15, Anonymous Anonym said…

    Hólímólí - þú hljómar bara eins og Húsmæðraskólagengin frú !

     
  • At 10.42, Blogger Tóta said…

    Já - I wish! Hef alltaf látið mig dreyma um að fara í Húsmæðraskólann - held að það sé rosalega gaman.

     

Send en kommentar

<< Home