Tótan bloggar

mandag, september 10, 2007

Endurvekja blogg...

Takk fyrir afmæliskveðjurnar:)

Komin til Danmerkur á ný og flutt inn til Hrefnu og Sellu - já Gyða skipti mér út fyrir Kidda - spes gella! En svona er þetta í Danmörkinni - einn daginn þekkirðu varla fólk og þann næsta ertu farinn að búa með því!

Á morgun er svo fyrsti dagurinn í mastersverkefnavinnu - átti að byrja í dag en fór að hjálpa Guðlaugu og Svenna að flytja dótið - þau áttu það nú svo sem inni hjá mér eftir að hafa gengið mér í foreldrastað síðustu tvo vetur!

Bless.

5 Comments:

  • At 20.29, Anonymous Anonym said…

    Jeij! Kominn tími til! Gaman að fá blogg aftur. Gangi þér vel í verkefnavinnunni.

     
  • At 15.41, Blogger Tóta said…

    Það er aldeilis - gerði ekki ráð fyrir að fólk liti hér við enn. En takk fyrir það Jóhanna mín ;)

     
  • At 17.27, Blogger Unknown said…

    Það er sko hellings traffík á síðuna þína Tóta :-)

    Hvernig er það með þig þann 6.október? megum við búast við að þú heiðrir okkur með nærveru þinni?

    Kv. Brynhildur

     
  • At 10.25, Blogger Tóta said…

    Tjah - það er naumast rennerí.

    Eins og staðan er í dag geri ég því miður ekki ráð fyrir að koma en held öllu opnu þar til formlegt boðskort berst mér og svarfrestur rennur út. Er stöðugt á icelandair og express síðunni - því miður halda þær ekki með mér!

     
  • At 21.49, Anonymous Anonym said…

    Tóta mín - good to have you back. Þó ég vilji mikið frekar hafa þig heima á klakanum.
    Brynhildur - innilega til lukku með trúlofunina, frétti af henni í gær. Ég óska ykkur yndislegs brúðkaupsdags i sveitinni 6. okt ! Skilaðu kveðju á kallinn þinn tilvonandi frá mér.
    Gott að nota bloggið þitt Tóta til að koma skilaboðum til lesenda, hihi.
    Heyrumst soon
    Kveðja
    Sívaxandi bumba
    Íris

     

Send en kommentar

<< Home