prófsapróf
Spurning um að hætta þessu barnatali og snúa sér að hinu daglega lífi hér í Köben - ekki nóg með að síðan sé skærbleik heldur hafa síðustu færslur snúist um gullpiltinn minn. Get ímyndað mér að Svenni sé hættur að leggja leið sína hingað ;)
Hins vegar er líf mitt ótrúlega leiðinlegt bara þessa dagana. Sit og læri fyrir síðasta prófið - sem þýðir að ég er að reikna allt í fyrsta skipti - alveg magnað hvað ég læri aldrei yfir alla önnina! Gyða er búin í prófum þannig að hún er bara eitthvað að dóla sér í Stokkhólmi svo að Gróa kemur hingað á daginn og við sitjum hvor í sínu herberginu og reiknum - fjör á Lybækgade!
Ég er iðulega með tónlist í gangi þegar ég reikna og svo kom allt í einu Kardemommubærinn áðan - ótrúlega notalegt. Maður fær samt smá kjánahroll stundum - þetta er náttúrlega barnaefni en það þarf greinilega ekki mikið til að gleðja mann í prófum!

0 Comments:
Send en kommentar
<< Home