Skíði!!
Páskafríið mætt og ég á heimleið í kvöld. Árshátíðin klikkaði bara smá - týndi myndavélinni minni með dýrmætustu myndum sem ég hef nokkurn tíma átt. Myndir frá stelpupartíinu um daginn, afmælinu hans Gunna og náttúrlega gullfallegar myndir af mér í árshátíðarkjólnum sem Karen Millen hannaði sérstaklega fyrir mig! Það voru þó fleiri með myndavél þetta kvöld og ég hef nú þegar fengið sendar frábærar myndir af mér, og öðrum, í stuðinu - þær verða ekki sýndar hér enda er þetta síða fyrir alla aldurshópa. Fyrir fólk undir 20 ára og yfir 60 ára - við skulum ekki fara illa með það ágæta fólk.
Annars hefur mín uppáhaldssíða þessa vikuna verið skidasvaedi.is og mun ég fara á skíði á morgun, ef Bláfjöll leyfa, þótt ég þurfi að fara ein! Hins vegar eru aðrir skíðaáhugamenn vinsamlegast beðnir að láta mig vita ef þeir eru lausir - væri frábært ef þeir væru líka á bíl ;) Ég bara verð að komast í snjóinn!
Svo er það bara stællinn í hádeginu á morgun - sjáumst!

3 Comments:
At 17.11,
Anonym said…
ahh..ég hefði verið til í að fara á skíði með þér en ég er víst að vinna...væri samt til á sunnudaginn og nú ég á auðvitað bíl og allt saman;)
At 12.50,
Tóta said…
Dæmigert - ég kem til landsins og Bláfjöll eru lokuð!
En ég tek þig bókstaflega Guðrún og dreg þig með ef það verður opið á sunnudaginn;)
At 14.44,
Anonym said…
Hei, sko nú er páskafríið löngu farið heim! Ekkert að frétta?
Send en kommentar
<< Home