Tótan bloggar

fredag, februar 16, 2007

Amagergellur

Á morgun verður gleðilegur dagur en erfiður. Búin að vera að pakka niður í kassa, töskur, svarta ruslapoka, ikea poka og ég veit ekki hvað og hvað undanfarna daga. Ástæðan er sú að ég og Gyða erum búnar að fá rosa fína íbúð á Amager og ætlum að hefja búskap þar á morgun. Búið er að kalla til liðsmenn sem munu hjálpa við flutninginn enda ekkert grín fyrir höndum. Fyrst þarf að taka allt mitt drasl, af þriðju hæð, og setja í bíl, keyra svo til Gyðu og ná í hennar drasl, af þriðju hæð og um hræðilega mjóan stiga. Svo þegar búið er að pakkfylla bílinn verður keyrt niður á Amager og dótið okkar borið upp á fjórðu hæð - hehe fjör!

Annars var ég að komast að því við þessa niðurpökkun að ég er með ótrúlega margar töskur hérna í Danmörku. Ég er nefnilega enn þá að flytja út og alltaf þegar einhver á leið til Köben er sá hinn sami beðinn að taka svo sem eins og eina tösku af drasli fyrir mig í leiðinni. Það hlýtur því bráðum að verða töskuskortur á Arnarhrauninu - trúi bara ekki öðru! Pæling að ég fari næst heim með troðfulla tösku af töskum - hmm... - bull.

7 Comments:

  • At 21.43, Anonymous Anonym said…

    Vona að gengið hafi vel að flytja í dag. Knús ;-)

     
  • At 09.31, Blogger Tóta said…

    Takk fyrir - það gekk sko alveg lygilega vel þrátt fyrir timburmenn liðsmanna;)

     
  • At 19.48, Blogger Beggi frændi said…

    Tóta, ertu búinn að stúta Opal-flöskunni?

     
  • At 10.53, Blogger Tóta said…

    Nei, hún er ekki alveg búin en ég tók hana fram á síðasta køkkenmøde í eldhúsinu um daginn. Held að krakkarnir hafi verið farin að hræðast íslensku stelpuna undir lokin!!!

     
  • At 13.20, Blogger Beggi frændi said…

    Hehehhe það var lagið - sýna þessum baunum hvurjir kunna að drekka :)

     
  • At 20.26, Anonymous Anonym said…

    hehehe þetta gekk alveg meistaralega vel hjá okkur, þrátt fyrir svakalega djamm atburði síðustu nætur, ekkert þægilegra þegar mar finnur eitrið spýtast útúr svitaholunum ;)

     
  • At 22.00, Blogger Tóta said…

    Hehe - þrefalt húrra fyrir skelþunnu liðsmönnunum!

     

Send en kommentar

<< Home