Enn eitt nýja árið...
Elsku vinir:
Gleðilegt ár og takk fyrir öll þau gömlu
Ótrúlegt hvað allir jólafrísdagarnir renna saman í eitt og allt í einu er maður búinn að liggja í sófanum í heila viku án þess að gera neitt að viti - og þetta gerist á hverju ári. Fyrir hvert einasta jólafrí er ég alltaf búin að ákveða að gera ótrúlega mikið í jólafríinu - fara út að ganga, njóta birtunnar meðan hún er þennan stutta tíma dagsins, lesa bækur - miklar bókmenntir eins og Laxness og Shakespare og helst ekki horfa of mikið á sjónvarpið. Það er einmitt sjónvarpið sem stelur öllum þessum klukkustundum - ég get horft á hverja vitleysuna á eftir annarri án þess í raun að njóta þess eða skemmta mér á nokkurn hátt. Ég reyni reyndar að komast hjá því að horfa á það allra leiðinlegasta eins og til dæmis Gametvíví og Rachel Ray á Skjá Einum.
Ég er sennilega bara löt - fékk eiginlega svona deisjavú þegar ég var að skrifa þetta því að þetta er nákvæmlega það sem ég geri á hverjum tímamótum á árinu.
Byrjun árs: Ætla að vera dugleg að læra jafnt yfir alla önnina - gerist ekki!
Vor: Ætla að vera dugleg að hreyfa mig og njóta veðursins - gerist ekki!
Haust: Ætla að vera dugleg að læra jafnt yfir alla önnina - gerist ekki!
Jólafrí: Same shit!
Vor: Ætla að vera dugleg að hreyfa mig og njóta veðursins - gerist ekki!
Haust: Ætla að vera dugleg að læra jafnt yfir alla önnina - gerist ekki!
Jólafrí: Same shit!
Ætli það sé til lækning við þessu eða er ég bara þessi lata týpa!?! Kannski er bara allt í lagi að maður sé latur - kannski ég geri eitthvað í málunum ef ég fell í beton teknologi - efast samt um það - of löt!

4 Comments:
At 03.18,
Víkingur said…
Vandamálið var akkúrat öfugt hjá mér... ég var búinn að plana massíft jólasjónvarpsogvídeógláp, en svo varð einhvern veginn ekkert af því. Náði ekki að horfa neitt á kassan um jólin, gerði ekkert annað en að éta og hitta aðra sem gerðu ekkert annað en að éta heldur!
At 22.38,
Guðlaug said…
Gleðilegt ár, ljúfan!
Ertu að fatta það núna? Þessi lata týpa? Hehehe ;)
Sakna þín nú samt hér í DK
At 10.08,
Tóta said…
Þú verður nú samt að viðurkenna að þú ert nú líka latur þegar kemur að skólanum Víkingur. Þú gerir kannski ekki sömu mistök og ég í byrjun hverrar annar að halda að eitthvað sé að fara að breytast!
Sakna þín líka Guðlaug og men hvað ég sakna DK - samt mjög fínt í vinnunni!
At 21.41,
Víkingur said…
Hehe góður punktur Þórunn!
Send en kommentar
<< Home