Það rignir í Köben
Í dag skilaði ég síðasta verkefninu þessa önnina. Ég er því búin með 15 (útlenskar) einingar og á þá aðrar 15 eftir - rúlla þeim upp 19., 20. og 21. des!
Á morgun eru hins vegar jólagjafainnkaup. Í kvöld ætla ég að skrifa lista yfir alla sem fá jólagjafir, og hugmyndir að jólagjöfum handa þeim sömu, og á morgun verður sá listi allur yfirstrikaður. Metnaðurinn er settur á að vera kominn niður í bæ rúmlega 10, drífa jólagjafirnar af og slappa síðan af. Tölta jafnvel niður að Nyhavn og fá sér einn jólabjór - ljúft.
Prófalesturinn byrjar svo á sunnudaginn (þann annan í aðventu) klukkan 8:00.
Á morgun eru hins vegar jólagjafainnkaup. Í kvöld ætla ég að skrifa lista yfir alla sem fá jólagjafir, og hugmyndir að jólagjöfum handa þeim sömu, og á morgun verður sá listi allur yfirstrikaður. Metnaðurinn er settur á að vera kominn niður í bæ rúmlega 10, drífa jólagjafirnar af og slappa síðan af. Tölta jafnvel niður að Nyhavn og fá sér einn jólabjór - ljúft.
Prófalesturinn byrjar svo á sunnudaginn (þann annan í aðventu) klukkan 8:00.

4 Comments:
At 18.45,
Anonym said…
Flott þessi nýja síða..finnst fyrirsögnin á henni góð:)
en alltaf ertu jafn skipulögð Tóta mín...með lista, yfirstrikanir og læti í jólagjafakaupunum...þú hefur alltaf verið mikið fyrir lista..man að þú gerðir alltaf lista yfir hvað þú ætlaðir taka með þér hingað og þangað og þeir voru alltaf gerðir með góðum fyrirvara...listar yfir hvað átti að taka með Kaldársel og svona hehe
jæja þú rúllar þessum prófum upp, ekki málið!
Hlakka til að sjá þig...við ættum eiginlega að fá okkur smá bjór saman í fríinu...höfum eiginlega bara aldrei gert það síðan í MR.
Knús, Guðrún
At 18.53,
Anonym said…
já gleymdi að segja að þessi mynd af þér fyrir neðan er algjör snilld...þú ert svo flott á henni að mig langar næstum í verkfræði;)
At 20.26,
Víkingur said…
Minnislistar rúla, ég skrifa líka alltaf lista. Verst hvað ég gleymi oft að lesa þá...
Þessi guli hjálmur er þér mjög svo til töffs, held þú ættir einnig að klæðast honum í frístundum.
Til lukku með nýja bleika bloggið þitt! Liturinn er á mörkunum að framkalla hjá mér uppsölu... reyndar er uppsöluhvatinn 98% tilkominn vegna óhóflegrar drykkju í gærkveldi og tilheyrandi þynnkumórals í dag. Bis bald!
At 00.33,
Tóta said…
Já minnislistar eru mitt líf og yndi. Á meira að segja svona ferðalagabók þar sem eru margra ára gamlir listar. Held að sá fyrsti sé síðan ég fór til Danmerkur þegar ég var 16 ára - langt síðan!!
Ég hef alltaf verið dálítið fyrir að hafa skipulag á hlutunum - hefði til dæmis aldrei getað mætt í próf bara með einn blýant í vasanum eins og sumir, Guðrún;)
Gott að þú ert ánægður með nýju síðuna Víks - hehe.
Kenneth - það er nú bara metnaðarleysi að gleyma miðanum. Þú verður að setja meiri alúð í gerð miðans, þá gleymist hann ekki. Mæli til dæmis með mismunandi litum...
Sæl Sigrún, tveggja barna móðir. Ég kem heim á þorláksmessu. Hlakka til að sjá ykkur fjölskylduna og hitta nýjasta meðliminn:)
Send en kommentar
<< Home