Tótan bloggar

mandag, januar 29, 2007

Tungumálaörðugleikar

Sat áðan inni í eldhúsi með stelpunum og við vorum að tala um það að fara til tannlæknis, mjög eðlilegar og einfaldar umræður myndi maður halda. En nei, mér tókst gjörsamlega að drepa þessar saklausu stúlkur úr hlátri. Ég er með dálitla tannlæknafóbíu sem lýsir sér þannig að ég leyfi ekkert öllum að krukka í tönnunum á mér - og hvað þá útlendingum. Ég hef því haft það fyrir "reglu" að fara til tannlæknis þegar ég er í fríi á Íslandi, er reyndar ekki búin að fara til tannlæknis í 5 ár en ég man að ég fór þegar ég var í jólafríi frá Berlín. Men hvað ég fékk það þó í hausinn núna í janúar, fyrsta skemmdin í lífi mínu! Allavega vorum við að tala um tannsa og mér varð á að segja: "jeg vil ikke have en dansker i min mund". Ég get sagt ykkur það núna að það getur bara þýtt eitt!!! Hefði betur haft orð eins og kigge með í setningunni - man það næst.

3 Comments:

  • At 22.25, Anonymous Anonym said…

    Hehe ;-)

    Það er svipað ástandið á mér, hef ekki farið til tannlæknis hér, jafnvel þó ég borgi aukalega til að fá tanntryggingu og augntryggingu (skólinn borgar rest)

    Magnað að það séu komin fimm ár síðan þú varst í Berlín. Spurning um að halda upp á það með heimsókn til Köben!?!

     
  • At 11.02, Blogger Tóta said…

    Já hvernig væri það!?! Þið eruð sko alltaf velkomin í heimsókn og núna get ég sko tekið rosavel á móti ykkur því að við Gyða erum búnar að fá íbúð niðri í bæ og flytjum þann 15. feb. VEI!!

     
  • At 16.19, Anonymous Anonym said…

    Vá, æðislegt!

    Þú komst fyrir í draumi í nótt, svona sanknar maður þín nú mikið.

    Knús.

     

Send en kommentar

<< Home