Tótan bloggar

søndag, april 22, 2007

Prinsessa, Sævar og Tivolí...

Í gær hjóluðum við Gyða og Guðrún niður á Strik og kíktum aðeins í búðir - þvílíkur munur að vera 10 mínútur að hjóla frekar en hálftíma í strætó niður í bæ! Það var náttúrlega fullt af fólki á Strikinu og H&M troðfull af Íslendingum! Ákváðum að taka smá túristatúr og hjóluðum út að Amalienborg og kíktum svo aðeins í Kristjaníu á heimleiðinni. Þar var náttúrlega frekar undarleg lykt en fólk hafði það bara hyggeligt í sólinni. Á leiðinni út hittum við Sævar Ciesielski og hann bað að heilsa heim - þeirri kveðju er hér með skilað!

Guðlaug fékk þessa fínu afmælisgjöf í gær en lítil prinsessa fæddist í Danmörku í gær - það hefur víst ekki farið fram hjá mörgum! Fréttatíminn í gær var þess vegna bein útsending af Rigshospitalet þar sem beðið var eftir að drottningin kæmi í heimsókn, fólk var að geta sér til um hvenær mæðgurnar kæmu heim og hvaða nafn/nöfn litla stúlkan fengi. Þetta var allt um fjórum tímum eftir að hún fæddist svo að fátt var um svör og fréttatíminn frekar þunnur!

Kannski förum við í tívoíið í dag.