Tótan bloggar

mandag, juni 18, 2007

26

Næsta vika verður merkisvika! Ég verð 26 ára þann 26.júní í viku númer 26. Ég hefði ekki tekið eftir þessu með viku 26 ef ég byggi ekki í Danmörku en þessir blessaðir Danir hugsa og lifa í vikukerfi. 26. júní verður líka góður dagur því að þá kem ég heim til Íslands :)

Fór síðast liðinn föstudag og keypti mér nýja tölvu því að hin er orðin pínu gömul og ekki alveg með á nótunum - ég keypti mér rosalega flotta tölvu og hef aldrei lesið leiðarvísinn eins vel með neinu dóti áður. Komst nefnilega ekki á netið heima en langaði að fikta í tölvunni - er komin á það að ég þurfi lykilorð á netið heima því að ég er á netinu í skólanum. Ví þetta er svo gaman!!

7 Comments:

  • At 17.10, Blogger Djalla said…

    Glæsilegt! Hvaða tölva varð svo fyrir valinu (ein rosa forvitin!)?

    Kys, Dj

     
  • At 22.13, Anonymous Anonym said…

    Jeij! Til hamingju með nýju tölvuna. En skemmtilegt þetta með 26 (engar hamingjuóskir strax samt!!!) Knús, Jóhanna

     
  • At 10.27, Blogger Tóta said…

    Takk takk - keypti mér HP tölvu með 15,4" skjá og alls konar fídusum! Það er til dæmis sjónvarp og upptökutæki í henni - sem ég vissi ekkert af áður en ég keypti hana! Algjört leikfang - en virkar líka í skólanum ;)

     
  • At 10.49, Blogger Þórhildur said…

    Til hamnigju med daginn 26, 26, 26,
    og hafdu thad gott a Íslandinu.

     
  • At 18.05, Anonymous Anonym said…

    Til hamingju með afmælið, Tóta mín. Og njóttu þess að vera heima. Knús, Jóhanna

     
  • At 00.55, Blogger Dísa Rós said…

    Kongrats með afmælið :D

     
  • At 12.59, Blogger baldvine said…

    Noh, ég gratínera (þótt seint c). Njóttu lífsins í Köben!

     

Send en kommentar

<< Home