Tótan bloggar

onsdag, juni 06, 2007

hvítar buxur..

Nú er ég búin að eiga hvítar buxur í eina viku og þær eru komnar í þvottavélina, með töluverðu Biotexi - eða galdraefni eins og mamma kallaði það í gamla daga! Sá þrjá fjólubláa dropa á vinstri skálm í morgun - sennilega eftir kvöldmatinn í gær. Svo var allt í einu einn brúnn blettur á hvoru hné í dag - sem ég náði mér örugglega í undir skrifborðinu í skólanum.

Metnaður næstu viku veður að reyna að halda buxunum blettalausum - ætli þær séu þá ekki bara best geymdar inni í skáp!

5 Comments:

  • At 12.22, Blogger Djalla said…

    Haha, er þetta svona erfitt Tóta mín?!

     
  • At 14.39, Blogger Tóta said…

    Já greinilega - í gær var ég að borða jarðarber í hvítu buxunum og viti menn, jarðarberjasafi fór á hægri skálm!!

     
  • At 18.17, Anonymous Anonym said…

    ég fann svo snilldar setningu um daginn í tölvunarfræði sem ég ætlaði að deila með þér, svo týndi ég henni.. finn hana á morgun þegar ég renn aftur yfir stöffið fyrir próf

     
  • At 19.29, Blogger Tóta said…

    ég bíð spennt!

     
  • At 20.54, Anonymous Anonym said…

    jæja.. einsog fram kom á blogginu lærði ég ekki fyrir prófið ..þó það hafi nú alveg staðið til.. ;)

    ég held ég verði samt að fletta setningunni aftur upp

     

Send en kommentar

<< Home