Prófagalsi
Alveg er nú hægt að fá nóg af því að sitja heima í jogginggallanum svo að ég ákvað að fara í pils og leðurstígvél í skólann í gær og setjast á bókasafnið að læra. Við Gróa erum búnar að sitja alla vikuna heima hjá mér og lesa svo að það var gott að skipta um umhverfi. Við vorum hins vegar alveg búnar að fá nóg af lestrinum um kaffileytið og drifum okkur á kaffihúsið. Ég dreif mig í stígvélin - aðeins of hratt - og renndi klaufalega í "rennilásahlífina" öðru megin og var pikkföst í skónum. Hitt stígvélið gekk ekki heldur alveg nógu vel þar sem ég var búin sitja svo lengi að kálfinn hafði þrútnað töluvert - gat rennt þægilega hálfa leiðina upp. Þetta ævintýri fór algjörlega með okkur Gróu og við hlógum eins og vitleysingar - tár og allur pakkinn sko. Við reyndum allt til að reyna að renna niður en urðum að leita hjálpar að lokum. Fórum í hláturskasti til Guðlaugar og Gústa - héldum að sterkir fingur myndu kannski hjálpa. Það endaði svo þannig að Gústi klippti í það sem ég kalla hér "rennilásahlífina" og stakk gaffli í rennilásinn til að ná almennilegu taki og svo var það bara fúll-spítt með lásinn sem losnaði loksins. Sá lás fór svo líka - mjög rólega - bara hálfa leiðina upp kálfann. Mér fannst þetta nú enda ansi vel miðað við það sem ég hafði ímyndað mér - var farin að sjá fyrir mér að þurfa að klippa allt stígvélið af. Þetta bjargaði algjörlega deginum hjá okkur - kannski svona "had-to-be-there-moment" en ég varð bara að deila þessu með ykkur!
Búin í prófum!
Búin í prófum!

3 Comments:
At 13.27,
Anonym said…
hahaha takk fyrir þetta:)Reyndar hélt ég um daginn að ég væri föst í öðrum línuskautanum mínum...fékk innilokunarkennd í smá stund en þurfti bara að læra aðeins betur á hann:)
Til hamingju með próflokin...hlakka til að hitta þig í sumar:)
At 22.29,
Tóta said…
Já það er nefnilega alveg ótrúlega óþægilegt að vera fastur í skó!
Hvernig væri svo að línuskauta saman í sumar;)
At 17.14,
Anonym said…
Meira en til í að línuskautast í sumar;)
Kv. G
Send en kommentar
<< Home