Megahelgi...
Vá - orð mín fá ekki lýst hversu mikið og vel ég skemmti mér um helgina. Nú er hins vegar hversdagsleikinn tekin við á ný og ég hjóla í skólann á meðan Haffi og Brynhildur njóta lífsins í brúðkaupsferð sinni í Ameríkunni. Af hverju er ekki hefð fyrir því að brúðkaupsgestir komi með í þriggja vikna brúðkaupsferð!?! Ég hugsa að fiskurinn - eins og Lassi kallar Gregor Fischer leiðbeinanda okkar - myndi ekkert sakna mín í þrjár vikur. Ekki myndi ég sakna hans!
Eitt sem ég skil samt ekki. Allur laugardagurinn fór í brúðkaupið hjá mér en samt var ég ekki einu sinni að gifta mig. Ég vaknaði auðvitað löngu fyrir hádegi en kúrði mig ofan í sængina mína eins lengi og ég mögulega gat til að geta hangið uppi um kvöldið. Upp úr hádegi fór ég svo á fætur, fékk mér að borða, fór í sturtu og dreif mig svo af stað að ná í linsur og fara í klippingu klukkan hálfþrjú. Ég var svo komin aftur heim um fjögur og þá var bara að drífa sig í dressið og mæta í rútuna klukkan sex. Ekki hefði ég komið fyrir heilu brúðkaupi úti á landi þarna inn í dæmið.
EN VÁ HVAÐ ÞAÐ VAR GAMAN!
Eitt steikt að lokum - ég hef aldrei verið eins "overdressed" á Celtic Cross!

5 Comments:
At 22.51,
Anonym said…
hellú - hvar er myndin af þér í henni Karen Millen ?? Bíð spennt
At 11.19,
Tóta said…
Held að þú verðir að tala við pabba til að fá að sjá þær myndir. Þú ættir þá jafnvel að hafa hraðar hendur því að hann verður búinn að eyða mér út áður en langt um líður - svona til að koma Manga litla örugglega fyrir!
At 13.09,
Anonym said…
Hæ hó,
ég var næstum búin að gleyma þessari síðu svona yfir sumarið...gaman að sjá að hér er allt að gerast...rífandi viðskipti bara;)
Nú spýtir maður í lófana og fer
að fylgjast almennilega með hér...
Að lokum vil ég óska Brynhildi og Haffa innilega til hamingju með brúðkaupið!...kannski ekki líklegt að þau sjái þetta en samt.
Það var ekki fleira...í bili.
At 19.32,
Guðlaug said…
Takk fyrir síðast, gellan mín!! Já, má segja að við höfum verið örlítið overdressed á Celtic... huhummm... Karen Millen er ekki að falla vel inn í innréttingarnar þar ;) En þetta var svooooo mikil snilld og það var algjört æði að fá þig heim. Takk fyrir að koma!
At 11.06,
Tóta said…
Þetta er greinilega allt að koma á þessari síðu - alveg hreint rífandi viðskipti;)
Takk sömuleiðis for sidst Guðlaug - og anytime:)
Send en kommentar
<< Home