Brúðkaup - vei...
Mikið hlýtur að vera erfitt að vera fæddur á vitlausum tíma. Sá um daginn gaur með hár niður á bak með dredlokks og í svona hettupeysumussu sem var í tísku þegar ég var í grunnskóla og rifnum gallabuxum. Ekkert var svo sem út á þetta að setja nema hvað að hann var að ganga yfir götu á tánum. Af hverju var maðurinn ekki í skóm!?!
Fór um daginn í Fields og var í meira en einn og hálfan tíma inni í H&M. Keypti mér buxur, peysur, boli, sokkabuxur,... og borgaði ekki nema 1132,5 danskar krónur - I love H&M. Þar á eftir fór ég í Only og keypti mér vetrarúlpu - er að hugsa um að henda 250-kalla úlpunni sem ég er búin að vera í síðustu tvo vetur!
Nýjasta nýtt er svo að ég er að fara í brúðkaup þann 6.október:) Fékk alveg megaódýrt flug heim svo að ég ákvað að skella mér. Verð bara yfir bláhelgina svo að ég efast um að ég hafi tíma til að hitta margt fólk. Efst á lista er fjölskyldan og svo náttúrlega þeir heppnu sem mæta í brúðkaupið;)
Hvernig væri svo að fara að kíkja í bók - alveg pæling að fara að klára þetta endalausa nám.

6 Comments:
At 11.55,
Anonym said…
Ooo, heppin þú að komast í brúðkaupið. Verður pottþétt æðislega gaman :-)
Klukkan er 6 að morgni og ég er búin að vera andvaka frá 2.30 og fá mér tvisvar að borða. Svo ég fór að hanga í tölvunni undir því yfirskini að vera að vinna. Vona að svo að bumban leyfi mér að sofna bráðum...
Knús
At 14.47,
Tóta said…
Hvah - er þetta nokkuð óþekktarormur sem þú gengur með? ;)
Er líka sannfærð um að brúðkaupið verður æði - farin að hlakka mega til. En þú kemur bara í mitt brúðkaup - þér er hér með boðið í það:)
At 09.33,
Anonym said…
Ég hef líka séd "skvísu"stelpur hér í Lundi labba á tánum nidri í bae...er fólk ekkert hraett vid glerbrot.
Gréta (Jóhönnu systir)
At 11.20,
Tóta said…
Nákvæmlega! Ég er svo klikkuð að ég væri bara hrædd við að skera mig og fá einhverja ógeðis sjúkdóma.
At 14.12,
Anonym said…
Takk Tóta. Ég verð að fara gera eitthvað í þessum brúðkaupsmálum. Hingað til bara komist í mitt eigið brúðkaup í vinahópnum...!!! Hefði verið skítt að missa af því líka ;-)
Ég man einmitt eftir því að hafa séð berfætt fólk á röltinu í Lundi þegar við vorum þar með pabba í gamla daga. Skildi ekkert í því þegar ég var ca. 10 ára og ekki heldur núna. Aldrei séð þetta hér nema í einum af frábæru raunveruleikaþáttunum.
At 14.51,
Tóta said…
Hahaha - já hjúkk að þú komst í þitt eigið brúðkaup;)
Get ekki skilið af hverju fólk er ekki bara í skóm - varla er þetta þægilegra á malbikinu.
Send en kommentar
<< Home