Blogg
Úff hvað það er leiðinlegt að bíða og gera ekki neitt! Verkefnið mitt gengur út á það að skrifa tölvupósta og svara tölvupóstum - enn sem komið er að minnsta kosti. Alveg óskaplega leiðinlegt. Vona bara að glerið mitt fari að koma og þá get ég farið að steypa og gera eitthvað að viti.
Október er bara mánuðurinn í ár. Það er bara kominn 19. október og alveg fullt búið að gerast. Jóhanna og Palli eru búin að eignast Grétu Björgu, ég var nú að vonast til að hún fengi Þórunnarnafnið en ég fæ víst að bíða lengur eftir því:) Haffinn og Brynhildur gift, afi orðinn 92 ára, ég búin að sjá Möns Klint - flotta kalkkletta í Danmörku og svo veðja ég á að Íris og Þór eignist dóttur í október. Ég efast um að sú skotta fái nafnið mitt - það yrði kannski svolítið einhæft fyrir hana, eiginlega bara stagl.
Svona til að gera þetta aðeins lengra er um að gera að ræða aðeins veðrið. Hér er orðið frekar kalt en fallegt. Sólin skín í dag og hún á eftir að gera það næstu daga líka - indælt. Er að hugsa um að rölta niður Strikið á eftir. Kíki kannski aðeins á útsöluna hjá Karen Millen í leiðinni ;)

0 Comments:
Send en kommentar
<< Home