Tótan bloggar

fredag, november 02, 2007

púl og afslappelsi

Er með strengi í kálfunum í dag. Eiginlega hissa á að ég sé ekki öll undirlögð því að við Gyða fórum í hinn ótrúlegasta tíma í gær. Step I í 55 mínútur. Á tímabili hélt ég að ég hefði þetta ekki - var orðin eldrauð í framan og að deyja úr loftleysi því að Danir opna aldrei glugga. Tók mig þá bara til og opnaði einn sjálf og komst þá aðeins nær meðvitund. Kom skemmtilega á óvart hvað við vorum lítið meira úti á þekju en margir aðrir þarna - vorum eiginlega farnar að kvíða fyrir áður en við byrjuðum yfir því að gera okkur að fíflum. Ég játa nú samt alveg að stundum var ég svo mikið úti á þekju enda ekkert smá erfitt að vera farin að dansa kringum pallinn með einhverjum sporum. Við vorum alveg búnar á því eftir tímann og kom hann því ótrúlega skemmtilega á óvart.

Eftir púlið tók svo videokvöld við en Mýrin var sýnd klukkan 21:00 á Rudolph Berghs Gade 34 í gær. Þar var boðið upp á popp og íslenskt nammi :)

5 Comments:

  • At 12.53, Anonymous Anonym said…

    Takk fyrir gærkvöldið! Sem betur fer tókst mér að vinna upp allt kaloríutapið úr step tímanum meðan við horfðum á videó!!! Hjúkk! :P

     
  • At 16.14, Blogger Tóta said…

    ... já og vel það er ég hrædd um!

    Og tak for sidst :)

     
  • At 00.38, Blogger Guðlaug said…

    Oh! Missti ég af videókvöldi?! Ég er ekki ennþá búin að sjá þessa mynd, verð að fara að bæta úr því, er það ekki? Svo vantar mig einhvern til að fara með í ræktina - viljið þið ekki bara koma heim? Blikk, blikk ;) Sakna ykkar endalaust!

     
  • At 10.47, Blogger Tóta said…

    Hlusta á Tótuna - ekki flytja heim!! Við getum alveg endurtekið videokvöldið og fitnessworld er æst í að fá þig með - komdu aftur út...

     
  • At 11.33, Anonymous Anonym said…

    Já komdu úúút!!! :):):) Lofum videókvöldi! :)

     

Send en kommentar

<< Home