Fálkarnir í Danaveldi
Sigrún og Erling eru á landinu þessa vikuna og hitti ég þau og þeirra tvær dætur í bænum í gær. Við fórum á Italiano með stóra H&M poka eins og Íslendingum sæmir. Á eftir bauð ég svo heim til mín þar sem við sátum og blöðruðum í rólegheitunum. Hóffý Lára sofnaði fljótlega í sófanum en Brynhildur sat á gólfinu og teiknaði kalla á blað. Mikið voru nú foreldrarnir ánægðir með myndirnar sem frumburðurinn teiknaði enda hinir fínustu kallar. Hins vegar átti ég í dálitlum erfiðleikum þegar Brynhildur bað mig að teikna kjól á fígúruna sína. Hvar setur maður kjól á haus með handleggi og fótleggi...

3 Comments:
At 16.32,
Anonym said…
hvernig? ..huhh.. ertu ekki í verkfræði?
At 18.32,
Anonym said…
Þær eru í alvöru klikkaðar þarna á Nörrebro - örugglega allir á e eða eitthvað. Shit klikkaður tími og miiiiiiiklu betri en á Österbro!!! Spái því að ég verði að ferðast um í hjólastól á morgun!!!
At 10.49,
Tóta said…
Jújú, verkfræðineminn reddaði þessu að lokum - stúlkan litla var allavega ánægð.
Úllalla - hlakka mega til í kvöld. Spurning hvort ég hirði þig þá ekki upp á leiðinni Gyða og setji þig bara í körfuna mína á hjólinu ;)
Send en kommentar
<< Home