Aðventan
Á laugardaginn gekk ég í ungdóm á ný. Mér leið eins og 15 stelpu þegar Lassi hringdi í mig um sexleytið og spurði hvað ég vildi borða um kvöldið og hvort hann ætti að leigja fyrir mig videomynd. Ég var nefnilega búin að taka það að mér að passa Hilmar litla á meðan foreldrarnir fóru út að borða með vinum frá Íslandi. Ég pantaði mér bara hamborgara og myndina Holiday og mætti klukkan átta. Hilmar var allt annað en erfiður og svaf allan tímann og svo hjólaði ég mig bara heim klukkan eitt þegar foreldrarnir mættu aftur en þau borguðu mér í vínflösku og djúppoka - einstaklega vinsælt ;)
Á föstudeginum buðum við Gyða í mat heima hjá mér - svona til að gera eitthvað áður en flestir fara í próf - hehe ekki ég!! Við bjuggum til kjúkling í appelsínusósu og kvöldið áður hafði ég skellt í tobleroneís sem var í eftirrétt. Við buðum Gróu og Bjögga og herramönnunum af Hjørringgade svo að það var eilíft fjör.
Fyrsti í aðventu var tekinn með mikilli ró og sat ég hálfan daginn og las í Sonum duftsins - meiri snillingurinn hann Arnaldur. Þegar líða tók á daginn hjólaði ég mig niður í bæ og keypti mér smá garn og fékk mér jól í augun:)
Hin ágætasta helgi.

4 Comments:
At 13.22,
Anonym said…
Skemmtileg helgi hjá þér...ár og öld síðan maður var að passa...ég minnist þess ekki að hafa fengið greitt í vinflösku..enda kannski ekki alveg viðeigandi þegar maður er 15:)
Ég fékk smá jól í magann um helgina;)...fór í tvö jólahlaðborð..frekar næs:)
Hvenær kemur þú heim? Farin að hlakka til að hitta þig. Ég var að spá að það væri gaman að halda Mohjito partý með ykkur Sólveigu milli jóla og nýárs. Við verðum allavega að hittast allar þrjár!
At 13.23,
Anonym said…
Kv. Guðrún;)
At 22.23,
Anonym said…
Jól í augun - maður fær bara MR nostalgíu! Knús, Jóhanna
At 22.47,
Tóta said…
Guðrún mín - ertu orðin svolítið fyrir áfengið? Þú nefnir nú Mohjito í hverri athugasemd ;) Annars er ég til í það hvenær sem er mín kæra!
Já Jóhanna - ég hugsa til Rögnu Láru í hvert skipti sem ég fer í bæinn fyrir jól - einmitt til að fá jól í augun;)
Send en kommentar
<< Home