Tótan bloggar

onsdag, januar 16, 2008

Bloggiblogg

Afsakið hlé en nú er bara loksins nóg að gera! Er komin á gott skrið í tilraunum og steypi nú átta gaura á dag, einn gaur er 25x25x285 mm, gaman þar. Svo er ég loksins farin að bonda við Erik sem er meðhjálparinn í steypudeildinni. Fyrst var hann heldur þurr á manninn og nennti ekki alveg að tala við mig en svo þegar ég hætti að biðja hann um hjálp og spyrja hann að ýmsu sem við kom tilrauninni kom í ljós að hann er hinn fínasti kall - bara húðlatur og nennir ekki að vinna. Hann situr því þarna nokkuð aðgerðarlaus með Paris Hilton hundinn sinn og reykir, gott djobb!

Gyða geðveika er aftur mætt svo að ég fer í ræktina annan hvern dag - sem veitir víst ekki af eftir jólin. Gyða er því með í þakkarbænunum á kvöldin. Annars er ég ein í höllinni. Sella er ómætt enn og Hrefna sést lítið mín megin á sólarhringnum - kannski ekki skrítið, í gær fór ég að sofa klukkan 22:00 - geri aðrir, eldri en 8 ára gamlir, betur!!

Ólukkans netið virkar ekki heima og einhvern vegin nenni ég ekki að blogga þegar ég er í skólanum - núna er ég til dæmis orðin mjög sýrð í höfðinu eftir daginn og ætla bara að pilla mig heim.

Sæl að sinni.

7 Comments:

  • At 19.58, Blogger Sella said…

    Hehe þú ert alveg ágæt - kl.22:00, það er nú ekki í fyrsta skipti sem Tótan fer svona snemma að sofa! En ekki örvænta ég kem eftir 12 daga og þá verður sko gaman hjá okkur!

    Ég er strax farin að hlakka til skipulagningar á "ferðum " okkar til Ribe, Berlin og/eða einhvað annað sniðugt í nágrenninu.

    Endilega dragið mig með í ræktina þegar ég kem - held að það veiti ekki af...sjáumst hressar elskan!

     
  • At 20.59, Anonymous Anonym said…

    Jæja, gott að einhver hefur mig í bænunum sínum ;) hehe

    Annars verðurðu rassskellt ef þú skrópar í ræktina á morgun!!! Annars ertu búin að vera rosalega dúleg síðustu 2 vikur :)

     
  • At 23.31, Blogger Djalla said…

    Auðvitað var hann þurr á manninn...hann var með lungnabólgu! Hahaha. Enívei, gott að fá fréttir af þér, það var sko alveg kominn tími á það.

     
  • At 10.15, Blogger Tóta said…

    Vá - bjóst nú ekki við að þið væruð svona mikið að bíða eftir bloggi:)

    Mikið hlakka ég til að fá þig aftur Sella. Íbúðin er heldur þögul en ég veit að þú kippir því í liðinn með komu þinni;)

    Þú ert sko betri en einkaþjálfari Gyða. Ég mun að sjálfsögðu mæta í ræktina í dag - þó að ég sé með harðsperrur dauðans í maganum!

    Já, ekki veit ég af hverju ég var að kvarta yfir því að Erik væri með lungnabólgu um daginn. Hann gæti alveg eins verið heima hjá sér alltaf bara! Hvenær kemurðu annars til Köben Djalla?

     
  • At 10.39, Blogger BO said…

    Hva, er Tótan að hugsa sér til hreyfingar í Föðurlandinu (Vaterland). Hér er allt fullt ávaxta og vína.

     
  • At 11.08, Blogger Djalla said…

    ég kem 9. feb og verð til 12. Það verður pakkað á milljón en svo á líka að verða tími eftir til að sýna Sverri öll hangoutin mín! Hlakka til að sjá þig

    Cxx

     
  • At 15.22, Blogger Tóta said…

    bo, ha?

    Hlakka til að sjá þig C og láttu mig bara vita ef ykkur vantar gistingu, já eða hjól:)

     

Send en kommentar

<< Home