jóla...
Tók mér frí frá skóla í gær og fór niður á Strik í jólagjafaleiðangur. Var ansi snögg að þessu og var komin heim um hálftvö og þá búin að kaupa fimm jólagjafir, þó eru enn tvær eftir. Ég notaði mér auðvitað af því að láta pakka inn fyrir mig þegar það stóð til boða. Hins vegar fékk ég nettan Love Actually fíling þegar verið var að pakka inn fyrir mig í einni búðinni og leið eins og Rowan Atkinson væri að afgreiða mig. Ég keypti eina litla flík - takmarkaðar upplýsingar gefnar upp hér - og konan tók fram risastóran kassa! Ég hélt líka að Sella myndi kafna úr hlátri þegar ég dró upp litlu tuskuna úr kassanum heima.
Nú er ég hins vegar komin aftur í skólann og farin að sigta sand- vúhú!
Nú er ég hins vegar komin aftur í skólann og farin að sigta sand- vúhú!

3 Comments:
At 21.20,
Anonym said…
Haha ertu að tala um stóóóra kassann þegar ég var með þér :D:D:D
At 11.23,
Tóta said…
The very one! Er enn sannfærð um að einhvers staðar hafi verið falin myndavél.
At 13.02,
Sella said…
Þetta er náttúrulega eitt það fyndnasta sem ég hef séð.....hahhahah
Send en kommentar
<< Home