Hey Jude...
Rólegheita helgi að ljúka og minni síðustu í Danmörku á þessu ári! Við Sella kíktum í bæinn í gær með öllu fólkinu og ég kláraði eina jólagjöf. Veðrið var gott þannig að það var fínt að komast út þótt það væri kalt. Við röltum upp Strikið og enduðum á pylsu á Ráðhústorginu...

Um kvöldið komu svo Gyða og Kiddi með Parad-ís, Gunni með bjór og við Sella lögðum til nammi og köku. Settumst svo við sjónvarpið og horfðum á hina undarlegustu mynd "Kunsten at græde i kor". Alltaf gaman horfa á danska mynd - þeir eru svo klikkaðir, Danirnir. Eftir myndina sátum við og röbbuðum og gestirnir fóru um tvö enda enginn að drífa sig heim - þar biðu bara bækurnar.
Dagurinn í dag hefur verið hinn allra rólegasti í langan tíma. Er eiginlega búin að sitja í sófanum í allan dag, búin að sjá skíði í sjónvarpinu, hanga á facebook og svo veit ég ekki alveg hvað ég gerði við restina af tímanum. Svona á þriðji í aðventu að vera - enginn lærdómur bara leti :)

2 Comments:
At 10.53,
Anonym said…
Vá hvað ég hlakka til að hangsa ALLANN miðvikudaginn niðri í bæ að kaupa jólagjafir :):):)
One day to go :P
At 14.19,
Anonym said…
Er þokkalega með þér í anda á Strikinu my love...
Gaman að heyra í þér smá á laugardaginn síðasta - hlakka til að knúsa þig laugardaginn næsta
Kv
Íris
Send en kommentar
<< Home