Happy christmas Yoko - happy christmas John
Sellan er flogin heim og ein sit ég eftir í höllinni - allavega á kristilegum tíma, Hrefna er náttúrlega hinum megin á sólarhringnum við mig svo að hana hitti ég mjög sjaldan. Kláraði að kaupa jólagjafirnar í gær og vona að sigtun á gleri klárist í dag. Annað kvöld er matur og djamm hjá Gyðu og Kidda svo að föstudagurinn verður tekinn í leti og pökkun. Síðla kvölds þann dag mun ég svo líka fljúga heim og ég hlakka voðalega mikið til. Hlakka auðvitað til að hitta alla en mest hlakka ég til að hitta Manga litla og hana Freyju sem Íris vinkona á:) Hana hef ég bara aldrei hitt.

7 Comments:
At 13.49,
Sella said…
Það er að koma að þessu.... þú ert að koma heim á leið Tóta mín - þín er líka sárt saknað ;o)
Vertu svo endilega í sambandi ef að þú kíkir á tjúttið í 101R þá væri nú gaman að hitta á skvísuna!
kveðja ur rigningunni
At 17.05,
Anonym said…
Fallegt nafnið sem Íris og Þór gáfu stelpunni sinni. Segi bara til hamingju til þeirra hér.
At 23.49,
Anonym said…
Takk Jóhanna, hamingjuóskir mótteknar - og right back at you með hana Grétu Björg
Tóta mín, sjáumst á laugardaginn :o)
Kveðja
Íris Ó
At 03.43,
Sella said…
Gleðileg jól og hafðu það sem allra best yfir hátíðirnar elskan. Takk æðislega fyrir allar frábæru samverustundirnar á árinu sem er að líða og VÁ hvað ég hlakka til allra samverustundanna á Rudolph Berghs Gade og videre á næsta ári.
Jólakoss og knús til famelíunnar ;o)
At 01.34,
Sella said…
KOMA SVO blogga smá....- Hvernig er lífið á RBG 34? Hlakka til að sjá þig í Kóngsins Köben eftir nokkra nokkra daga!
At 16.54,
Víkingur said…
Ég ákvað að líta hérna við til að athuga hvort þú hefðir eitthvað skánað. Svo sýnist mér ekki vera, svo ég bið bara að heilsa ;)
At 19.41,
Djalla said…
Ókei ég fékk útskýringu á þögninni í morgun: þú ert ekki nettengd! Hlaut eitthvað að vera, þú sem ert svo dugleg. Hlakka bara til að sjá einhver skrif hérna sem fyrst ;)
Send en kommentar
<< Home