Pítsan er búin
Mér er búið að takast að fá þrisvar sinnum kvef á árinu og ekki er nú mikið liðið af því. Ég ætla rétt að vona að þetta fari að ganga yfir en mig grunar að steypublandan mín sé að stríða ónæmiskerfinu!
Sambýlið á Rudolph Berghs Gade hefur verið fjörugt undanfarið og ekki lítur út fyrir að það breytist á næstunni. Daginn fyrir bolludag buðum við 20 manns í kaffi og 78 bollur! Sem betur fer gerði Hrefna líka snittur og brauðrétt svo að fólk fékk ekki algjört sykursjokk - ég var þó á mörkum þess. Sjá fagurt bolluborð að neðan.

Videoklúbbnum Bergi hefur nú verið breytt í aktivitetsgruppen Bergh en við Sella komum báðar með spil að heiman eftir jól. Við höfum því spilað Scrabble, Cluedo og Trivial allnokkrum sinnum. Um helgina bættist svo nýtt spil við en eftirvæntingin eftir því hefur verið gríðarleg. Hér er um að ræða hið nýja Partý&co sem slær víst öll spil út. Líklegt þykir því að Bergh fari á stjá næstu helgi!

4 Comments:
At 17.51,
Anonym said…
Ja hérna, maður er bara farinn að telja niður dagana fyrir spilakvöld ;)
At 23.00,
Sella said…
Mikið er þetta flott mynd - hehe mætti halda að ég hafi tekið hana ;o)
Aktivitetsgruppen Bergur verður svo sannarlega með tíða fundi á næstunni, nóg að gera - þið megið hér með formlega vígja Party og Co um helgina meðan ég verð menningarleg í Arhus.
Góða skemmtun og hlakka til að vera með næst ;o)
At 10.06,
Anonym said…
Menningarleg???!
Áttu ekki við full? ;)
At 10.27,
Tóta said…
Hahaha - góð Gyða!
Send en kommentar
<< Home