hej
Fyrir tveim vikum var ég veik og nú er ég aftur orðin veik - alveg óþolandi. Átti í töluverðum erfiðleikum með að ná andanum í nótt og ákvað því að halda mig heima í dag - hugsa að ég verði jafnvel heima á morgun líka. Það sem er mest pirrandi er að tilraunirnar eru loksins komnar af stað og mig langar bara að drífa þær af - þar að auki er ég orðin spennt að sjá hvort eitthvað gerist af viti í þeim.
Er farin að halda að strætóferðirnar séu góðar smitleiðir. Þar situr maður þétt upp við næsta mann og iðulega einhver sem lyktar af einhverju. Um daginn settist strákur fyrir framan mig og ég var hreinlega í vímu það sem eftir leið ferðar. Við og við gaus upp rakspíralykt þegar hann hreyfði sig en hins vegar var viðvarandi sykursæt lykt af hárgelsdollunni sem hann hafði sett í hárið á sér! Veit ekki hvort er betra að hafa hann fyrir framan sig eða andfúlan gaur fyrir aftan sig.
Jess - pítsan mín er komin:)

3 Comments:
At 12.39,
Anonym said…
Koma svo! Hrista af sér veikindin!!!
At 17.13,
BO said…
Ertu enn að snæða pizzuna?
At 19.22,
harpa said…
heldurðu að þetta sé smitandi veiki sem þú varst með... ég er nefnilega orðin veik núna... :) annars bið ég bara að heilsa þér það er oðið allt of langt síðan við höfum heyrst...
Send en kommentar
<< Home