Það er svo frábært að búa í Danmörku...
Ég á engan bíl en kann ágætlega við strætó. Ég veit hvenær strætóinn minn fer að heiman og upp í skóla og svo frá skólanum og aftur heim þannig að ég þarf sjaldan að bíða lengi eða hlaupa á eftir honum. Síðast liðinn föstudag hljóp ég hins vegar á eftir þremur strætóum - á háum hælum í öll skiptin. Þá var ég komin heim úr skólanum og á leiðinni í vísó rétt við Hovedbanegården. Þá tók ég vagna sem ég fer sjaldan með og veit ekkert hvenær koma. Mér fannst þetta heldur há tala á einum degi svo að ég taldi hversu marga strætóa ég tók þennan dag - þeir voru sjö talsins!
Önnur strætósaga. Bílstjórarnir virðast flestir eiga vini sem taka strætó og því er iðulega einhver að tala við hann á leiðinni. Í sjöundu ferðinni minni heim á föstudaginn var einmitt einn slíkur félagi hjá hurðinni fremst. Þegar ég var svo næstum komin heim sá ég að hann talaði táknmál og þegar ég leit í spegilinn hjá bílstjóranum sá ég að hann talaði táknmál á móti!! Mikið var ég fegin að komast út.
Strætókveðjur.

2 Comments:
At 11.04,
Anonym said…
Þakka fyrir bílalánið mitt þegar ég heyri svona sögur...
At 22.49,
Sigrún Helga Lund said…
hahaha! Þetta er rugl! Væri ekki hægt að sekta hann fyrir að tala ekki handfrjálst? :)
Send en kommentar
<< Home