Tótan bloggar

onsdag, marts 05, 2008

skædd

Síðast liðin helgi var einstaklega róleg og ljúf. Mamma var í heimsókn og ég fékk tvö ný skópör :) Á föstudeginum sendi ég mömmu eina í bæinn meðan ég fór í skólann og ótrúlegt en satt skilaði hún sér heim aftur. Hringdi bara einu sinni í mig þegar hún fann ekki strætóinn sinn á Ráðhústorginu - hann var á Nörreport. Þetta er allt að koma hjá henni! Kíktum bæði í skólann og í bæinn á laugardeginum og kvöldið endaði með rauðvíni, ostum og blaðri en Ruth frænka kom og borðaði með okkur. Lét hana svo plata mig á tvö söfn á sunnudeginum, bæði Statens museum for kunst og Glyptoteket. Ég vísaði veginn úr einu safninu í hitt og fór að sjálfsögðu gegnum bæinn en þar var sunnudagsopnun - þar græddi ég sjúklega flotta nike skó!

Svo er bara farið að styttast í páskafríið en það verður fjörugt!

5 Comments:

  • At 22.10, Anonymous Anonym said…

    Alveg ljómandi söfn bara :) og fínir skór!!!

     
  • At 14.07, Anonymous Anonym said…

    Alltaf gott að eiga nóg af skóm. Hvað stendur til um páskana?

     
  • At 14.01, Blogger Tóta said…

    Páskarnir eru sko planaðir út í gegn. Fyrst koma Guðlaug, Svenni, Olga og Steina til Köben og svo förum við Guðlaug og Svenni til Stokkhólms að heimsækja Begga, Erling og Sigrúnu + börn. Þvílíkt stuð á næsta leiti!!

     
  • At 15.04, Blogger KA said…

    Það má alltaf bæta við einu pari... aldrei af mikið af skóm, það er víst.
    (æjjj hvað þetta er sætt, allt á dönsku hér)

     
  • At 17.44, Blogger Tóta said…

    Einmitt Kata, sérstaklega þegar mamma kemur og borgar:D
    Og já danskan er svo indæl;)

     

Send en kommentar

<< Home