Tótan bloggar

mandag, december 01, 2008

Julefrokost

Nú er ég orðin rík kona í útlöndum. Fékk útborgaðar danskar krónur síðast liðinn föstudag - ekki lítið verðmætar á Íslandinu núna! Vinnan er enn skemmtileg en það gerist annað fjörugt hér í danaveldi en vinna. Á laugardaginn var haldinn danskur julefrokost á RBG með íslensku ívafi. Þar var bæði boðið upp á flæskesteg og hamborgarahrygg, brúna sósu, brúnaðar kartöflur og risalamand. Þar að auki var heimagerður daimís og malt og appelsín - heljarinnar veisla:) Eftir matinn var svo pakkaleikur þannig að enginn fór tómhentur heim - eða milli hæða... Flest fékk fólkið nóg að drekka og Tótunni tókst að hjóla á staur - svona slow-mo fílingur svo að ég er óslösuð:)

Þrjár vikur í heimferð...

1 Comments:

  • At 03.34, Blogger Sella said…

    Takk fyrir FRÁBÆRT kvöld í alla staði!! Verst að hafa misst af því þegar þú lullaðir á staurinn ;o) hehe

     

Send en kommentar

<< Home