Tótan bloggar

onsdag, maj 07, 2008

enn um blessaða sólina

Síðustu færslur hafa víst ekki verið of vinsælar þannig að ég skal reyna að bæta mig og skrifa eitthvað skemmtilegra :) Ég skrapp út í búð í dag sem var gott frí frá skrifunum. Í ljós kom að góða veðrið er ekki bara til að geta farið í sólbað og njóta þess að vera fáklæddur sjálfur heldur líka til að fylgjast með öðru fáklæddu fólki! Við eitt húsið í götunni minni er verið að leggja stétt og voru tveir ungir og myndarlegir menn að bardúsa við þetta í dag - berir að ofan. Ekki þarf mikið til að gleðja lítið hjarta undir miklu álagi!

5 Comments:

  • At 15.51, Blogger Djalla said…

    ég veit ekki með þig, en ég er alla vega búin að vera að sóla mig hér á Hellu í glaðasólskini og hita...Köben schmöben! ;)

     
  • At 16.29, Blogger Tóta said…

    Jahá - það getur verið að sólin líti stundum við á Hellu en ekki gat ég betur séð en að Sverrir væri í lopapeysu á mynd hjá þér ;)

     
  • At 17.45, Blogger Djalla said…

    huh, það var nú fyrir 3 vikum og klukkan 8 að morgni 8-)

     
  • At 14.23, Blogger Sella said…

    Ég skal gleðja þitt litla hjarta - bráðum ertu búin og þá getum við farið saman í Parken og leikið okkur með nyja fína sumardótið okkar....jíha ;o)

    You can do it.... þú massar þetta!

     
  • At 15.45, Blogger Tóta said…

    jájá - íslenska sumarið getur nú verið ljúft líka ;)

    alveg að verða búin - alveg að verða búin - alveg að verða búin - ég hlýt að hafa þetta!

     

Send en kommentar

<< Home