Tótan bloggar

mandag, april 07, 2008

Skype - deitstaður?

Fyndnast í geiminum kom fyrir áðan. Var að tala við Sólveigu á msn-inu áðan og hún var að senda mér myndir af nýju íbúðinni sinni þegar einhver aslan reyndi að hringja á skypinu mínu, ótrúlega mikið að trufla mig. Þetta kemur örsjaldan fyrir - þ.e. að einhver dúddi úti í bæ hringir á skypinu eða byrjar að chatta. Ég náttúrlega skellti bara á - alveg tvisvar - og hugsaði ekkert meira út í það. Þá byrjaði bara gemsinn minn að hringja og það var "hemmeligt nummer" og ég var eitthvað að velta fyrir mér hver þetta gæti verið þegar Sella segir í djókinu: örugglega bara aslan. Jújú þetta var bara aslan sjálfur!

Hann benti mér vinsamlegast á að hann væri að reyna að hringja í mig á skypinu og að ég svaraði ekki. Hann heitir sum sé Mark og talaði dönsku og þegar ég spurði af hverju hann var að hringja í mig sagði hann bara að gemsa númerið mitt væri skráð hjá mér á skypinu, fannst greinilega ekkert undarlegt að hann væri yfir höfuð að reyna að ná í mig. Ég sagðist nú bara nota þetta til að tala við vini mína og hann baðst afsökunar á ónæðinu. Hvað í fjáranum! Einmana gaur men!

Nú er ég hins vegar búin að taka gemsa númerið mitt af skypinu!

8 Comments:

  • At 21.25, Blogger Sella said…

    Þetta var náttúrulega svo FÁRÁNLEGA FYNDIÐ - lifi nýji deitstaðurinn Skype ;o)

     
  • At 12.20, Anonymous Anonym said…

    hahaha..mjög eðlilegt eða hitt þó...léttklikkaður gaur:

    Til hamingju með áfangann, sbr. síðustu færslu;)

    Gangi þér vel að skrifa!

     
  • At 15.24, Anonymous Anonym said…

    Já vonandi hringir hann bara ekki aftur ;)

    ...og aftur og aftur og aftur og aftur!!!

     
  • At 01.57, Anonymous Anonym said…

    Hehe!

    Ég held það sé hægt að stilla þannig að aðeins þeir sem eru samþykktir sjái upplýsingarnar.

    Jóhanna

     
  • At 16.36, Blogger Tóta said…

    Ég hélt einmitt að ég væri með svona privat stillingu en einhvern veginn hefur aslan félagi minn komist yfir númerið mitt.

    Hann hefur sem betur fer ekki hringt aftur!

     
  • At 14.47, Anonymous Anonym said…

    Hvaða hvaða, hver veit nema að þú hafir látið hið besta mannefni framhjá þér fara!
    Hekla

     
  • At 14.33, Blogger Sigrún Helga Lund said…

    Hva! Kemur Skype ekki með nefstærðarsíu? ;)

     
  • At 15.52, Blogger Tóta said…

    Já það getur vel verið Hekla en ég hlýði ömmu enn þá með að líta ekki við erlendum karlmönnum;)

    Sigrún: HAHAHAHAHA!
    Þetta verður ekki útskýrt frekar.

     

Send en kommentar

<< Home