Ljúfa frí
Ekki er hægt að segja að metnaðurinn sé mikill hér á blogginu enda hefur svo sem ekkert stórmerkilegt gerst hér undanfarið þar til um síðustu helgi. Þá mættu fjögur frækin til Köben og tóku með sér mikið stuð - og reyndar leiðinlegt veður líka! Guðlaug, Svenni, Olga og Steina krössuðu í höllinni á Rudolph Berghs Gade. Eftir djamm, verslunarferðir, út að borða og fleira fjör héldum við Svenni og Guðlaug svo til Stokkhólms að hitta Erling, Sigrúnu, Begga og Braga. Þar tók við meira fjör en hrikalegur kuldi. Veturinn hefur verið einstaklega ljúfur þar til núna um páskana - þá loksins kom vetur með snjó og kulda.
Ég hef ekki komið til Stokkhólms síðan ég var 15 ára og þá sem barnapía. Mér fannst ég bara nokkuð vel með á nótunum og þekkti suma staðina aftur. Mundi meira að segja eftir bíóinu þar sem ég sá Primal Fear, sum sé árið 1996!
Er alveg ótrúlega ánægð með páskafríið þetta árið - takk þið öll fyrir samveruna:)
Nú þarf ég bara að bretta upp ermar og klára eitt stykki mastersverkefni!

2 Comments:
At 11.08,
Anonym said…
Frábært að þú naust páskafrísins svona vel. Þú ert þá endurnærð fyrir verkefnið...Gangi þér mega vel!
At 15.00,
Tóta said…
Takk takk :)
Send en kommentar
<< Home