Tótan bloggar

lørdag, april 05, 2008

End of an era

Í dag er hátíðardagur í mínu lífi. Steypti síðustu guttana mína og er endalaust hamingjusöm. Er löngu orðin þreytt á að vera með sorgarrendur, brotnar neglur og fastan skít á höndunum sem er allt annað en kvenlegt! Hélt því upp á daginn með því að fara í sturtu (kominn tími til - múhaha) og eyða heillöngum tíma í að skrúbba á mér hendurnar - virkaði samt takmarkað.

Annars höfum við Fergie Ferg verið ótrúlega duglegar að steypa saman í vikunni og var ég með hana á repeat í eyrunum marga daga í röð - ótrúlega kúl gella sko! Nú fer hins vegar að styttast í skil á verkefninu og þá er víst eins gott að fara að setjast við tölvuna - og gera eitthvað af viti.

Yfir og út.

Tótan.

3 Comments:

  • At 16.22, Blogger Sella said…

    INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÞENNAN ÁFANGA. Þú mátt svo sannarlega vera ánægð með þig, þú ert búin að vera drullu dugleg ;o) hehe í orðsins fyllstu.

     
  • At 20.25, Blogger Djalla said…

    Til hahahamingju!

    Skemmtu þér nú vel við skriftirnar. Vona að veðrið verði ekkert súpergott meðan þú skrifar, annars verður erfitt að halda sér við efnið!

    Hlakka til að sjá þig á heimaslóð.
    Kys

     
  • At 21.12, Blogger Tóta said…

    Takk takk. Hlakka til að koma í heimsókn til ykkar Lappa á Hellu bráðlega:)

     

Send en kommentar

<< Home