fatastærðir
Ég hef aldrei skilið hvers vegna fólk kaupir sér of lítil föt. Sérstaklega fer fyrir brjósið á mér að sjá stelpur í of stuttum og þröngum bolum eða of lágum og þröngum buxum! Var í mesta sakleysi mínu að sigta sand áðan - já já enn að steypa - þegar ég tók eftir stelpu sem sat á barstól inni í kennslustofunni. Henni tókst á ótrúlegan hátt að vera með skoru upp á bak. Hún var alls ekki feit heldur bara venjuleg. Hins vegar var hún í alltof lágum buxum með svona rosalega þröngum streng að hann bjó til skoru úr húðinni langt upp á bak - alvöru skoran átti að vera löngu búin!
Af hverju ætti það að vera slæmt að kaupa sína réttu stærð af fötum - maður grennist ekkert á því að kaupa einum minna. Allt hið undarlegasta mál!
Af hverju ætti það að vera slæmt að kaupa sína réttu stærð af fötum - maður grennist ekkert á því að kaupa einum minna. Allt hið undarlegasta mál!

4 Comments:
At 14.49,
Anonym said…
Þakkaðu fyrir að hún var í streng. Hér glittir í hina einu sönnu skoru..
At 16.10,
Tóta said…
Nei - þetta var ekki svoleiðis strengur heldur buxnastrengurinn sem var þröngur! Sást ekki í neitt sem kallast gætu nærbuxur. Veit heldur ekki hvort það ætti að sjást í svoleiðis því að þetta var uppi á miðju baki. Ótrúlega undarlegt allt saman!
At 19.20,
KA said…
Það er tvennt í þessu; hvað er barstóll að gera í kennslustofunni? og hitt, erum við ekki að tala um meira ein "einni stærð minna"?
Ég gæti ekki verið meira sammála þér.
Svo fara strákar út í hinar öfgarnar, kaupa svo stórt og vítt að þeir eru í mesta bastli við að halda buxunum á rasskinnunum! Væri gaman að sjá þær pompa niður einn daginn.
kv. frá þýskurum
At 15.51,
Tóta said…
hahaha - þetta var í tilraunastofu og þar eru há borð og barstólar:)
og jú buxurnar eru alltof litlar - sá stelpuna aftur í dag - mjög slæmt.
Sammála með strákana líka. Var einmitt í Netto í gær þegar einn starfsmaðurinn beygði sig niður og sást þá í alltof mikið af götóttum nærbuxunum! Allt annað en huggulegt þegar maður er að kaupa í matinn.
Send en kommentar
<< Home