þvottadagur
Sit inni í góða veðrinu. Á að sitja límd við stólinn og skrifa en finn mér alltaf eitthvað sniðugt að gera. Setti til dæmis í þvottavélina áðan og skrapp svo út og strauk veturinn af snúrunum. Nú hanga svo rúmfötin mín úti og draga góða loftið í sig - mmm... hlakka til að setja þau aftur á rúmið í kvöld! Er auðvitað búin að setja meira í vélina sem fær sömu meðferð á eftir. Aldrei hefur mér fundist þvottastúss leiðinlegt!
Í fréttum er það svo helst að mulið flöskugler stendur sig betur ef kornastærðin er undir 1mm.
Í fréttum er það svo helst að mulið flöskugler stendur sig betur ef kornastærðin er undir 1mm.

4 Comments:
At 12.40,
Anonym said…
innivera þín kemur mér lítið á óvart Dósí mín - hefur nú ekki í gegnum tíðina verið mikill sólardýrkandi. Good luck að skrifa.. já eða þvo - sama hvort verkefnið þarfnast lukku.
Spurning hvort við höldum eitthvað uppá "vinkonu afmælið" okkar í byrjun júní? - mér reiknast til að við séum orðnar 22 ára?
At 18.14,
Tóta said…
Vá - þetta eru orðin nokkur ár! Eru svo ekki Jóhann Vignir og Gunnar Smári bara tvítugir í ár - eða er það á næsta ári!?! Sjitt en ógeðslega fyndið!
At 12.30,
Anonym said…
hahaha - við Haddý vorum einmitt að tala um þá í göngutúrnum okkar í gær !!!! Ekki amalegar nafngiftir hjá okkur maður ! Já, gott ef þeir eru ekki bara að verða tvítugir gormarnir okkar, spurning um að fara að grafa þá uppúr pappakassanum til að sjá hvernig árin fara með þá?
At 16.17,
Tóta said…
Já það þýðir ekkert annað en almennileg nöfn á svona prýðisdrengi! Alveg spurning um að fara að frelsa þá blessaða - og félagana með. Held einmitt að þau séu öll saman í kassa, Gunnar Smári, Rebekka Kristín, Helga Sóley, Anna Rósa og fleira gott fólk:)
Send en kommentar
<< Home