heilabarningur
Skrifaði fullt í gær en eyddi því svo út í dag. Skrifin eru þvílíkur barningur og hvert orð tekur óratíma í að komast niður úr litla heilanum mínum í fingurna. Vona bara að nágrannarnir séu ekki að fylgjast með mér inn um gluggann því að fyrir kemur að líkaminn engist til og frá með tilheyrandi andlitsgrettum við fæðingu einnar setningar. Svekkjandi ef eigandi íbúðarinnar myndi segja upp leigusamningnum okkar vegna kvartana frá nágrönnunum sem óttuðust að geðveika konan færi að áreita börnin í hverfinu.
Dönsk nöfn eru stundum alveg ótrúlega asnaleg. Áðan var viðtal við lækni í sjónvarpinu sem heitir Jerk Langer. Hversu svekkjandi er að fara til dæmis til Bretlands og kynna sig sem Skíthæl!?! Hjúkk að eftirnafnið skuli allavega ekki vera Off!

3 Comments:
At 23.12,
Anonym said…
úúú nafna brandarar - djöfulli hlýtur þú að vera orðin steikt !
At 18.13,
Tóta said…
Bíddu bara - það eru enn tæpar fjórar vikur í skil. Þetta mun bara vesna!!
At 22.25,
Unknown said…
O, skil þig svo vel, stundum sit ég á glápi á tölvuskjáinn og bíð eftir að eitthvað af viti birtist þar.
Send en kommentar
<< Home