Tótan bloggar

onsdag, november 19, 2008

Ný vinna

Það kemur víst ekki neinum á óvart að íslensk fyrirtæki í útlöndum eru ekki vinsæl þessa dagana og því hef ég fengið nýja vinnu :)

Er búin að vinna hjá Ramböll í tæpar þrjár vikur og fíla það bara nokkuð vel. Að vísu er ég tæpan klukkutíma aðra leið með strætó en verkefnið er spennandi og vinnufélagarnir skemmtilegir. Á Amager er verið að byggja tveggja turna hótel og hvor turn 23 hæðir. Ég er í eftirliti þar þannig að ég er bæði á skrifstofunni að stússast og fer svo inn á milli út á byggepladsen með hjálm og tékka á því hvort kallarnir - og kellingarnar - geri þetta almennilega :)

Síðasta mánudag var svo rosalega mikið að gera í verkefninu því að nýjar teikningar voru að koma út og ég sat til rúmlega ellefu um kvöldið og teiknaði. Rétt náði síðasta strætó heim. Þetta var svo rosalega vel metið að allt yfirvinnufólk fékk konfektkassa frá Magasin í dag!!

Annars er fólk bara komið í jólaskap á þessu heimili - Sella og Sigga sitja hérna og föndra og hlusta á jólalög - ofsakósí! Og ég hlakka rosalega til að koma heim um jólin, lendi alveg korteri fyrir jól þann 23. des.

Konfektkveðjur úr Danmörkunni...

4 Comments:

  • At 23.59, Blogger Johanna said…

    Það eru aldeilis breytingar! Til hamingju með nýju vinnuna.

     
  • At 12.29, Anonymous BO said…

    Eitt sinn komum við Charlotta heim 23. Des frá Köben. Er við lentum í Kef hljómaði jólalagalyftutónlist "Ding ding ding, ....ding ding ding, ...ding ding ding ding ding" og flugstjórinn sagði með brostinni röddu. "Góðir farþegar, velkomnir heim og gleðileg jól". Njóttu heimkomunnar og "nýrra" skötu!!

     
  • At 15.45, Anonymous Íris Ólafsd said…

    Noh - Tótublogg á lífi ? Hlakka til að fá þig heim jólasveinninn minn

     
  • At 19.48, Blogger Tóta said…

    Takk takk Jóhanna:)

    Haha hlakka til að heyra í flugstjóranum mínum á Þorláksmessu.

    Jájá enn á lífi - rétt man að kíkja hérna inn sjálf :p

     

Send en kommentar

<< Home