Tótan bloggar

torsdag, september 11, 2008

Einkunn: 10!

Í dag er góður dagur! Nú er ég loksins orðin verkfæðingur og gekk bara súper vel. Kynnti verkefnið fyrir Gregori mínum og sensori sem heitir Eilif - eins og einn hundur sem ég þekkti einu sinni, hann varð fyrir bíl en kemur ekki hér við sögu. Fáeinir áheyrendur voru líka enda er nauðsynlegt að fá að sjá hvernig svona fer fram áður en maður ver sitt eigið verkefni. Kallarnir voru bara nokkuð sáttir með Tótuna og gáfu henni eitt stykki 10 í einkunn! Litli rauðhausinn er því loksins orðinn verkfræðingur - með sóma. Í kvöld verður svo hamborgarapartí á RBG34 og út-að-borða-stöff um helgina.

Svona á að gera þetta krakkar mínir.

Þórunn Sigurðardóttir
Byggingarverkfræðingur - að rifna úr ánægju

14 Comments:

  • At 13:25, Anonymous Íris Ólafs said…

    Tóta mín !!!!
    Innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og nýja flotta titilinn þinn
    Love always
    Íris

     
  • At 16:32, Anonymous Guðrún Sveins said…

    Vó, það er ekkert lítið, bara 10 takk fyrir!..Þú ert snilli....Innilegar hamingjuóskir elsku Tóta byggingarverkfræðingur:)

     
  • At 20:43, Anonymous BO said…

    Til lukku......þú nærð mér alltaf hálfu ári síðar eða svo!!

     
  • At 10:44, Blogger Tóta said…

    Takk fyrir, takk fyrir!

    Já BO en héðan af læt ég mér nægja að elta þig í aldrinum - ekki náminu. Nú er ég hætt!

     
  • At 18:58, Anonymous Magnus said…

    Tillykke með glæsilegan árangur og skemmtilega vörn, Master Tóta

     
  • At 03:01, Blogger Johanna said…

    Innilega til hamingju Tóta mín. Glæsilegur árangur. Knús.

     
  • At 21:23, Anonymous Anonym said…

    Bestu hamingjuóskir Tóta mín.
    Samgleðst þér innilega
    Kveðja Þorgerður.(amma Grétu Bjargar)

     
  • At 09:41, Anonymous Berglind Rosa said…

    til hamingju ! :)

     
  • At 17:12, Blogger Sigrún Helga Lund said…

    Til hamingju snilli!!

     
  • At 17:42, Blogger Tóta said…

    Takk elskurnar - það er aldeilis að fólk rambar hér inn enn. Aldrei að vita nema ég bloggi bara aftur á næstunni :)

     
  • At 09:29, Anonymous Baldvin said…

    Jibbí jibbí jibbí :D:D:D

    Innilega til hamingju, Tóta mín.

    Helv%&% er ég ánægður með þig!

     
  • At 19:17, Anonymous Anonym said…

    Flott. Til hamingju!

    -Gréta Jakobs

     
  • At 00:05, Blogger Vikingur said…

    Til hamingju með þennan mikla sigur Tóta mín!
    Haltu endilega áfram að blogga einhverja vitleysu :)

     
  • At 16:39, Anonymous Anonym said…

    Vó greinilega allt of langt síðan ég hef kíkt hérna inn! En innilega til hamingju verkfræðingur!
    Harpa

     

Send en kommentar

<< Home