Tótan bloggar

torsdag, juli 31, 2008

hó...

Það er víst ekkert leyndarmál að ég er ömurlegur bloggari.

En allavega. Kom til Danmerkur í gær eftir óvænta en skemmtilega Íslandsför. Leið eins og hálfvita í metróinu í svörtum sokkabuxum og háum strigaskóm, dröslandi handfangalausri töskunni minni á eftir mér. Allir aðrir voru berleggja í sandölum.

Eins og það er nú gott að koma heim til Íslands þá er nú alltaf gott að koma í dótið sitt aftur og ég tala nú ekki um að setjast upp á fákinn græna og geta hjólað allra sinna ferða en ekki vera háður stórfjölskyldunni með bílamál - takk fyrir lánið á drekanum Helgi minn :)

Endaði svo gærdaginn á því brjóta ólukkans gleraugun mín - ég hreinlega tosaði þau í sundur og annað glerið datt úr. Viðgerðin mun kosta 398 danskar krónur og ef ég er heppin munu blessaðir Danirnir vera búnir að gera við þau áður en ég legg land undir fót á Mallorcu - held að það sé ráð að leggjast á hné biðja fyrir þeim ef það á að takast! Brottfarardagur er þann 9. ágúst og heimkoma þann 23. ágúst. Ég mun því ekki gera neitt af viti í nákvæmlega tvær vikur!

4 Comments:

  • At 01.15, Blogger Sella said…

    Tóta mín þú munt gera margt að viti á Mallorca...t.d liggja á vindsæng og hafa það kósy, drekka nokkra kokteila og VERA MEÐ MÉR OG TELMU ;o)

    Get ekki beðið ;)

     
  • At 10.57, Anonymous Anonym said…

    Ég er enn bara að reyna að ná því að Dósí sé að fara til sólarlanda - af fúsum og frjálsum vilja. Sammála síðasta ræðumanni - þú átt eftir að hafa nóg að gera, full vinna að halda kerfinu gangandi á kokteilum í öllum þessum hita, mundu að drekka frekar einum of mikið af kokteilum en einum og lítið !
    Hafið það ossalega gott
    Sól og heiði og allt það,
    Love íris

     
  • At 19.57, Blogger Telma said…

    Jiiihhh... það verður svo gaman hjá okkur tótfríður :D
    og það að gera ekki neitt a.k.a drekka kokteila og flatmaga í sólinni getur nú bara tekið ansi mikið á get ég sagt þér... hahaha

    Hlakka til að sjá ykkur eskurnar mínar!!

     
  • At 22.06, Blogger Tóta said…

    Engar áhyggjur íris mín - ég mun standa mig vel í kokteilunum og fékk gott sólarlandauppeldi á Klettó í gamla daga ;)

    Girls - ég hlakka mega til að vera með ykkur í sólinni!!!

     

Send en kommentar

<< Home