Tótan bloggar

mandag, juni 02, 2008

já - hæ!

Blogg segiði - ég var nú bara búin að gleyma því að ég væri með svoleiðis!

Ég er alla vega búin að skila verkefninu mínu og hef ekki flett í gegnum það síðan - er alveg komin með ógeð af því og fegin að þurfa ekki að verja alveg strax - geri ráð fyrir að það verði ekki fyrr en í ágúst! Er búin að vera að vinna í tvær vikur og fékk fyrsta launaseðilinn í dag - þvílík hamingja :) Nóg er að gera þessa dagana því að Helgi bróðir minn kom með fjölskyldu sína til Danaveldis í síðustu viku. Við erum búin að hafa það rosalega gott enda veðrið geggjað. Ég fékk lánað hjól hjá Gróu og Bjögga sem er með barnastól svo að þeir feðgar hafa hjólað með okkur Siggu eins og herforingjar. Hjóluðum meðal annars út í Bakken á laugardaginn - eðal alveg...

Næstu dagar verða teknir í vinnu og sólbað - ekki spáð skýi á himni næstu fimm daga! Í næstu viku ætla ég svo að skella mér heim og vera í tíu daga, kem 12.júní og fer aftur 22.júní. Það verður rosafínt og ég hlakka til að hitta fjölskylduna og vinina og auðvitað að fara í brúðkaup ársins til Steinu og Stebba:)

Veit ekki hversu dugleg ég á eftir að vera hérna á blogginu á næstunni en sjáum til...

Bless í bili, Tótan.

5 Comments:

  • At 20.34, Blogger Sella said…

    hummm minnist ekkert á að þú sért að yfirgefa mig alla þessa daga - ég er strax farin að kvíða fyrir 10 dögum án eiginkonunnar minnar!!

    En well við náum quality momenti saman eftir það, og TÓTFRÍÐUR svo ég nefni nú ekki ástkæru Mallorca ferðina okkar í ágúst!! jíhaaaa

     
  • At 13.12, Anonymous Anonym said…

    Vei Vei...pant fá að hitta þig eitthvað þegar þú kemur heim!

    Kær kveðja, Da

     
  • At 01.11, Anonymous Anonym said…

    Hlakka til að sjá þig eftir nokkra daga Dósí mín. Litli sonur Haddý og Denna fékk nafn í dag - Ólafur Ingi heitir snáðinn, skírður í höfuðið á afa sínum og ömmu.
    Luv
    Ípíripis

     
  • At 04.29, Blogger Unknown said…

    Góða ferð heim skvísa :-) Hlakka til að hitta þig í júlí, það er barasta ekki svo langt þangað til. Knúsímús :-)

     
  • At 20.54, Anonymous Anonym said…

    tóta! ég r að hugsa um að koma til danmerkur 25 júlí og vera í viku. verður þú á staðnum kæra frænka?

     

Send en kommentar

<< Home