Mér er heitt
Tótan berst nú fyrir lífi sínu í um 35 stiga hita og stendur sig nokkuð vel verð ég að viðurkenna. Fórum á markað í dag og ég keypti mér alvöru túrista-stuttermbol til að skýla aulahúðinni minni! Leið því miklu betur þegar við túristuðumst upp í fjöllunum og skoðuðum kúl stöff! Um daginn fórum við á jetski og ég settist aftan á hjá Sellu og ætlaði að láta það nægja. Hin þrjú, Telma og tveir danskir vinir hennar voru öll á sér ketti og við fórum í stóra hringi. Ég missti svo einhvern tíma út úr mér að annar Daninn væri að ná okkur. Þá gaf Sellan svo rosalega í að hún henti okkur báðum af - ég ætlaði sko ekki að láta hana skilja mig eftir svo að ég ríghélt mér í hana og dró hana með mér í sjóinn! Eftir það tók ég við stjórninni og það var geggjað gaman - tókst þó því miður ekki að hefna mín á píunni!
Nú er bara að worka tanið þar til við stúlkukindurnar höldum heim á leið til Köben á laugardagskvöld - geri ekki ráð fyrir að metnaðurinn verði mikill í því enda finnst mér ég orðin alveg nógu brún-ish...
Nú er bara að worka tanið þar til við stúlkukindurnar höldum heim á leið til Köben á laugardagskvöld - geri ekki ráð fyrir að metnaðurinn verði mikill í því enda finnst mér ég orðin alveg nógu brún-ish...

4 Comments:
At 11.09,
Anonym said…
Brún-ish , hehe !
At 21.25,
Tóta said…
Já já - ég er að ná tani - það er náttúrlega ekki hægt að kalla þetta brúnt í kringum þetta lið hérna!
At 14.23,
Anonym said…
he he...þú ert snilli!...Velkomin heim til Köben:)
Kv. Guðrún Sveins
At 18.01,
Sella said…
hehe jesús minn hvað var gaman á jetski og vá hvað ég ætlaði mér að henda þér af en haldast sjálf á kettinum ;) En bara gaman!
Takk fyrir æðislega ferð elskan og gangi þér ofur vel í vinnunni í dag!! See you tonight honey!!
Send en kommentar
<< Home